L.o.k.s.i.n.s.
Í fréttum er þetta helst:
- 2 dagar í Benidorm. Níd æ sei mor? Eftirvænting stelpnanna leynir sér ekki. Afbrýðissemi einkennir hugarástand mitt. Afhverju hætti ég við að fara með? WHYYYYY ??
- Ég sótti um í Borgó. Víí. Bíð spennt eftir svari. Sótti um á upplýsinga og fjölmiðlabraut og vona svo sannarlega að ég komist inn. Ef ég kemst ekki inn, þá held ég áfram í Verzló.
- Ég er vinnualki. Ég vinn allt of mikið :(. Hef voða lítinn tíma til að hitta stelpurnar eða gera eitthvað yfir höfuð. Síðan þegar ég er loksins í fríi eru allir vinnandi. Há fönn.
- Fólk sem þekkir mig veit að það á aldrei að byrja að ræða PC/Macca mál við mig. Ég verð alveg snar. Hilmir fékk að kynnast því um daginn. Ég verð pirruð og breytist í varúlf.
- Ég get frætt ykkur um kjúklinga. Ég veit muninn á legg, væng, rifjabita, upplæri og bringu. Endilega látið mig vita ef þið viljið fá nánari upplýsingar.
- Gísli aka Nasty Boy, kom í vinnuna til okkar um daginn og fór að máta vel fleginn kvenmansbol... og keypti hann.
- Ég er hætt að vinna þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla.
- 4 sykurpúðar hittust um daginn í Miðstræti nokkru, þar sem ég var með íbúð í láni. Mikið var spjallað við Möggu og heyrðum við röddina hennar (hehe, hljómar soldið perró). Ég sakna þín Magga. 206 dagar í heimkomu þína ;*
- Það er alltaf jafn gaman þegar fólk heimsækir mig í vinnuna :) Komið til mín og fáið ykkur eikkað gómsætt að borða.
- Ég fer í helgarfrí núna! og 17. júní á næstu grösum! Hvað skal gjöra? Ég er ekki komin með nein plön :/.
- Um helgina skal heitið í bíóferð á She´s the man . Híhíhí... ég veit bara um tvær manneskjur sem vilja sjá hana: ég og Begga. Vill enginn annar sjá hana? Anyone? Annnyyyooonnneee? *bergmálar*
- Mér finnst allt fyndið. Hvað er að mér?
- Í kvöld er smá pottadjamm hjá Kollu. Upphitun fyrir Benidorm. Hlakka til.
- Á síðustu tveimur dögum hefur mér tvisvar tekist að spreyja Victoria´s Secret body sprayi í augun mín.
- Margir hafa kvartað yfir því hvað ég læt heyra lítið í mér :/ Ég vil biðjast afsökunar á því. Ef ég er ekki í vinnunni, þá er ég ábyggilega sofandi. Skal láta heyra meira í mér og hitta ykkur oftar. Díll? :)
- Þar sem ég er með svo fínar tekjur, ætla ég að kaupa mér nýja tölvu þann 2. júlí. Macbook varð fyrir valinu! Enda þvílík snilld þessi tölva. Innbyggð iSight webcam og ég veit ekki hvað og hvað.
- Mig langar till úglanda. Ég öfunda alla sem eru að fara eitthvert út! Sérstaklega Benidorms-förunum og Palla og Trausta, því þeir eru að fara á Hróaskeldu.
- Heppnu svín. Þið öll sem eruð að fara eitthvert skemmtilegt. Ég hata ykkur.
- Ef ég fer ekkert út í sumar, þá drekki ég mér í Nauthólsvíkinni. Mark my words.
- Þegar dramatíkinni er sleppt þá get ég sagt við ykkur alla 5 lesendur sem skoða síðu mína: ég elska ykkur ;*

ÉG fer til Tyrklands 4. júli :D:D
hehe.. ég er að migla hérna í vinnunni... ætlaði að hætta., en má það víst ekki, það var ekki hægt að fá afleysingja svona snökkt,. En ég fékk vinnu í Brilliant skartgripaverslun. þannig að ef einhver vill vinna á hóteli :D talk to me.
.. og Móna,! þú ferð ekkert að drekkja þér í Nauthólvík! ég kem þá með fyrstu vél heim frá Tyrklandi, stekk úr vélinni á meðan hún er í lofti.. lendi akkúrat í Nauthólsvíkinni og bjarga þér :D:D!;)
lov'ya :*
mona ekki vanhelga slikan stad!!! Eg meina nautholsvikin... hallo? tad er okkar serstaki laumustadur... haha
eg er nu ekki ad fara til utlanda... eg er i utlondum muhahaha... en eg er ad fara i flugvel... til sudureyjunnar!! muhahahah
þessi bolur er að svínvirka á mig ég mæti í þessu á næsta djamm:D kostaði aðeins 1699 kr í hagkaup þar sem íslendingum finnst skemmtilegast að versla!:)
jei ég hlakka til :D
förum líka í ljós á eftir skvís :D
jei ég er farin en láttu heyra í þér :D
Natalía: Ég lofa að heimsækja þig á hótelinu dúllan mín, ég lofa! lofa lofa lofa :D Heppnust að vera að fara til Tyrklands... uss og ég myglandi hérna heima :( Hihi skemmtu þér vel og vonandi hittumst við bráðum ;* LOv ya 2!
Magga: Þegar þú kemur aftur til Íslands þá förum við aftur að skokka í Nauthólsvíkina. Potter!!! ELsk þig ;*
Gísli: Hehe pant að sjá þig í bolnum á djamminu. Funny shit. Hihi :D
Begga: Það var nú ansi gaman hjá okkur í ljósum ha :) híhí... verst að þurfa að kveðja Írisina okkar :(..
Bæjjjj kjánar:D
omg... er ad rita handa ter imeil... verdur ad sja tad... hevi snilld!!!
Góða góða lag. Steady, As She Goes.
Annars er þetta ógeðslega gott lag.
Og ég held að sumarbústaður sér sniðugri en utanlandsferð, bæði ódýrari og þú sleppur við flugvélina.
Eitt enn, gerði ég mig nokkuð að fífli í gær þegar ég hitti þig?
Hehe nei Maggi minn, þú gerðir þig ekki að fífli ;) Þú varst bara hress, eins og alltaf :D
En já, ég held að ég þurfi að skella mér í sumarbústaðaferð fyrst ég er ekkert á leiðinni út ! Góð hugmynd.
=D
Haha, gerðu það þá áður en þú drekkir þér í Nauthólsvíkinni.
haha maggi þú varst nú samt soldið spes og vinir þínir líka ;)
en já móna sumarbústaður hljómar betur er það ekki? :P
hehe ég fer nú til London svo það er eikkað :P
heyri í þér sæta =*
bloggadu mannfjandi...
:)
heyr heyr!
» Post a Comment