Sjaldan er flas til fagnaðar
Í gær fór ég í mat í heimahúsi Maggsins. Nú hugsið þið ábyggilega "Hvað er hún að gera hjá Magginu? Maggið er úti sem skiptinemi ". Ég geri mér fulla grein fyrir því að elskan mín var ekki þarna!
Það var mjög gaman. Það er svo skrítið að vera ekki lengur oft þarna hjá þeim. Maður var orðinn svo vanur því. Þetta er ein skemmtilegasta fjölskylda sem til er. Við fengum uppáhalds pastaréttinn minn. Fyrst þegar ég sá þennan rétt fyrir hálfu ári eða svo - varð ég ástfangin. Það var indælt að bragða aftur á þessum indæla rétti. Mikið var spjallað og hlegið. Auðvitað átti ég mitt daglega ljóskumóment. Þannig er mál með vexti að við fengum öll páskaegg og þegar var komið að mér að lesa upp málsháttinn minn las ég hann. Hann ku hafa hljómað á þennan veg: Sjaldan er flas til fagnaðar. Eins vel og ég er gefin misskildi ég málsháttin. Jóhanna spyr mig hvort ég viti hvað þetta þýðir. "Já það er allavegana eitthvað um flösur." .... Þá brutust út óeirðirnar. Það var hlegið. Það var hlegið mikið. Ég skil hvorki upp né niður. Mér fannst málshátturinn vera þannig að það er ekki gaman að fá flösur. Auðvitað er ekki gaman að fá flösur! Mér fannst þetta meika alveg 100 % sense. Rétta þýðingin er að það er ekki gott að flýta sér mikið eða eitthvað svoleiðis :-s En jæja =) Síðan var horft smá á Idol en síðan þurfti ég að fara. Ætla fara að kíkja oftar á þau!
Takk Jóhanna, Birgir, Hulda og Jói. Þið eruð yndi.
Eftir það fór ég með Írisi og Hirti í tvítugsafmæli hjá Bödda og var bara fínt þar. Maður kynntist nokkrum og svoleiðis.
Þegar partíið var búið og allir voru að halda niðrí bæ ætluðum við að skutla tveimur herramönnum eitthvert. Ekki leið á löngu þar til það sprakk hjá okkur. Við vorum heppnar að hafa haft einmitt þá karlmenn í bílnum! Þeir fóru út og skiptu um dekk. Þeir voru indælir. Takk. Loksins getur maður haft eitthvað gagn af karlpeningnum ;)
Strákar ættu að taka sér þessa drengi til fyrirmyndar.
JÁ HEYRIÐI ÞAÐ ÞARNA STRÁKASNARNIR YKKAR!
Hihi segi svona..
Ég er ekki geðveik.. í alvöru =)
P.S. Einungis 6 dagar í að ég flytji. Ég mun eignast bíl á næstunni (vííííí).
--- Afmælisbörn gærdagsins: Böddi (20 ára) og Þórhallur (23 ára) ---
Mér finnst merkilegt þegar fleiri en einn eiga afmæli sama dag. Ætli það sé til einhver dagur ársins þar sem enginn fæddist? Hversu mikið flipp væri það ef enginn ætti afmæli t.d. 4. júní ? Hihihi..

Árshátíð Rétthyltinga árið..ehh... 2004? Þetta var allavegana í 10. bekk! Er fólk búið að breytast eða hvað?
HAHA... flottust mynd =D Þið eruð allar rosa breyttar...
Jáh... Þetta kvöld var bara hryllilega fínt held ég nú bara...!=) Það var bara kósý að það sprakk hjá mér, meiri ævintýri finnst þér ekki......=D
Frábært blogg... keep up blogging ;)
ough farin að vinna =/
Sjá ykkur lúðana ;) hehehe
hahaha jáh breyttar :Þ tíhí :Þ
vá skrítið að sjá þig ljóshærða og möggu dökkhærða :Þ
Nauts marr eg er nakvaemlega sama personan thust skiluru!!!! Hahh fokkitt marr :):):)
p.s. tetta var med teim skemmtilegustu bloggum sem eg hef lesid i langan tima!!
BLoggaðu Móna mín... =D
magga mín hehe en samt skrítið að sjá ykkur með svissaða hárliti tíhíhí :P
blogg móna :D
» Post a Comment