body { background-image: url(http://photos1.blogger.com/blogger/7994/1253/1600/eden2.gif); overflow-x: hidden; margin: 0px; padding: 0px; background-position: top left; font-family: arial; font-size: 0.7em; color: #A5C733; scrollbar-face-color: #000000; scrollbar-highlight-color: #000000; scrollbar-shadow-color: #000000; scrollbar-3dlight-color: #000000; scrollbar-arrow-color: #A5C733; scrollbar-track-color: #A5C733; scrollbar-darkshadow-color: #000000; width: 365px; } #image { position: relative; top: 0px; left: 0px; width: 800px; height: 600px; background-image: url('http://photos1.blogger.com/blogger/7994/1253/1600/edenoriginal1.gif'); background-repeat: no-repeat; } #posts { position: absolute; top: 275px; left: 95px; width: 365px; padding: 3px; } #nav { position: absolute; top: 400px; left: 500px; padding: 10px; width: 180px; text-align: right; } #nav ul { margin: 3px 0px 0px 0px; padding: 0px; list-style-type: none; } #nav ul li { margin: 3px; } #nav p { margin: 3px 0px 0px 0px; } #nav ul a { color: #A5C733; font-weight: bold; font-size: 1em; padding-right: 20px; background-image: url(http://photos1.blogger.com/blogger/7994/1253/1600/othereden4.gif); background-repeat: no-repeat; background-position: right top; text-decoration: none; } #nav ul a:hover { color: #A5C733; background-image: url(http://photos1.blogger.com/blogger/7994/1253/1600/othereden3.gif); background-repeat: no-repeat; background-position: right top; } a { color: #A5C733; font-weight: bold; font-size: 1em; text-decoration: none; } a:hover { color: #FFFFFF; } strong, em, i, b { color: #FFFFFF; } u { text-decoration: none; color: #FFFFFF; border-bottom: 1px solid #A5C733; } blockquote { color: #000000; background-color: #A5C733; border: 1px solid #000000; padding: 3px; } h1 { color: #FFFFFF; font-family: arial; font-weight: bold; text-transform: lowercase; font-size: 20pt; line-height: 20px; text-align: left; letter-spacing: pt; } h2 { color: #A5C733; font-family: arial; font-weight: bold; text-transform: lowercase; font-size: 15pt; line-height: 15px; text-align: left; letter-spacing: pt; margin-top: -20px; } h3 { color: #FFFFFF; font-family: arial; font-weight: bold; text-transform: lowercase; font-size: 15pt; line-height: 15px; letter-spacing: pt; } .style1 {color: #FFFFFF}

Between The Lines






Ny siða

Thursday, July 20, 2006
NÝ SÍÐA / NÝ SÍÐA / NÝ SÍÐA

MONAHH.WORDPRESS.COM

MONAHH.WORDPRESS.COM

MONAHH.WORDPRESS.COM

MONAHH.WORDPRESS.COM

Atmosphere

Monday, July 10, 2006
Uppáhalds hip-hop sveit mín, Atmosphere, er að fara að spila á gauknum 12. Júlí kl. 20:30 og vona ég svo sannarlega að ekki allt of margir láti sjá sig þar því ég vil komast inn. Ég vil ekki þurfa að fara heim út af því að það er troðið. Ok?
Ég og Grímur erum að fara á þessa tónleika og enginn stoppar það! Takk !

Gvuðððððð ég hlakka svo til ! Ég hef beðið eftir þessum atburði í nokkur ár. Eitt af markmiðum ævi minnar er að fara á Atmosphere tónleika og hitta Slug kaddlinn.

ÍHHHHHHHH =D=D=D

Kv. Móna Atmosphere fan nr. 1



- Slug, án efa besti rapparinn -

Mig langir

Monday, July 03, 2006
Mig langir til ÚTLANDA !

ÚTLANDA, ÚTLANDA, ÚTLANDA !!

Sumarið er búið að vera GLATAÐ !!!!

Hver vill bjarga mér frá leiðindum?

Hjálp óskast, helst strax.

L.o.k.s.i.n.s.

Tuesday, June 13, 2006
Eins og glöggir aðdáendur mínir hafa tekið eftir, hefur síða þessi verið í tómu tjóni. Ég ætlaði að vera svo sniðug að gera þessa síðu ógleymanlega fyrir mannsaugað en einhvernveginn mistókst það. Offkors. En nú eru tímarnir breyttir og ég náði að laga þetta, held ég. Þetta er reyndar ekki útlitið sem ég ætlaði að hafa en það kemur þegar ég hef kynnt mér betur hvernig eigi að html-a. Stay tuned !

Í fréttum er þetta helst:

  • 2 dagar í Benidorm. Níd æ sei mor? Eftirvænting stelpnanna leynir sér ekki. Afbrýðissemi einkennir hugarástand mitt. Afhverju hætti ég við að fara með? WHYYYYY ??
  • Ég sótti um í Borgó. Víí. Bíð spennt eftir svari. Sótti um á upplýsinga og fjölmiðlabraut og vona svo sannarlega að ég komist inn. Ef ég kemst ekki inn, þá held ég áfram í Verzló.
  • Ég er vinnualki. Ég vinn allt of mikið :(. Hef voða lítinn tíma til að hitta stelpurnar eða gera eitthvað yfir höfuð. Síðan þegar ég er loksins í fríi eru allir vinnandi. Há fönn.
  • Fólk sem þekkir mig veit að það á aldrei að byrja að ræða PC/Macca mál við mig. Ég verð alveg snar. Hilmir fékk að kynnast því um daginn. Ég verð pirruð og breytist í varúlf.
  • Ég get frætt ykkur um kjúklinga. Ég veit muninn á legg, væng, rifjabita, upplæri og bringu. Endilega látið mig vita ef þið viljið fá nánari upplýsingar.
  • Gísli aka Nasty Boy, kom í vinnuna til okkar um daginn og fór að máta vel fleginn kvenmansbol... og keypti hann.
  • Ég er hætt að vinna þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla.
  • 4 sykurpúðar hittust um daginn í Miðstræti nokkru, þar sem ég var með íbúð í láni. Mikið var spjallað við Möggu og heyrðum við röddina hennar (hehe, hljómar soldið perró). Ég sakna þín Magga. 206 dagar í heimkomu þína ;*
  • Það er alltaf jafn gaman þegar fólk heimsækir mig í vinnuna :) Komið til mín og fáið ykkur eikkað gómsætt að borða.
  • Ég fer í helgarfrí núna! og 17. júní á næstu grösum! Hvað skal gjöra? Ég er ekki komin með nein plön :/.
  • Um helgina skal heitið í bíóferð á She´s the man . Híhíhí... ég veit bara um tvær manneskjur sem vilja sjá hana: ég og Begga. Vill enginn annar sjá hana? Anyone? Annnyyyooonnneee? *bergmálar*
  • Mér finnst allt fyndið. Hvað er að mér?
  • Í kvöld er smá pottadjamm hjá Kollu. Upphitun fyrir Benidorm. Hlakka til.
  • Á síðustu tveimur dögum hefur mér tvisvar tekist að spreyja Victoria´s Secret body sprayi í augun mín.
  • Margir hafa kvartað yfir því hvað ég læt heyra lítið í mér :/ Ég vil biðjast afsökunar á því. Ef ég er ekki í vinnunni, þá er ég ábyggilega sofandi. Skal láta heyra meira í mér og hitta ykkur oftar. Díll? :)
  • Þar sem ég er með svo fínar tekjur, ætla ég að kaupa mér nýja tölvu þann 2. júlí. Macbook varð fyrir valinu! Enda þvílík snilld þessi tölva. Innbyggð iSight webcam og ég veit ekki hvað og hvað.
  • Mig langar till úglanda. Ég öfunda alla sem eru að fara eitthvert út! Sérstaklega Benidorms-förunum og Palla og Trausta, því þeir eru að fara á Hróaskeldu.
  • Heppnu svín. Þið öll sem eruð að fara eitthvert skemmtilegt. Ég hata ykkur.
  • Ef ég fer ekkert út í sumar, þá drekki ég mér í Nauthólsvíkinni. Mark my words.
  • Þegar dramatíkinni er sleppt þá get ég sagt við ykkur alla 5 lesendur sem skoða síðu mína: ég elska ykkur ;*
Lag dagsins: The Raconteurs - Steady as she goes




-Í himnaríki tónlistaraðdáandans-

Friday, May 26, 2006
Ahhhhhhh kósí !
Ég er stödd í miðbæ Reykjavíkur. Nánar tiltekið Miðstrætinu. Í íbúð. Krúttlegri íbúð. Með gluggum. Veggjum. Hurðum. Dóti.
Snorri er farinn til DK ! Þannig ég hef íbúðina hans fyrir mig eina á meðan. Næs.

Afhverju er ég í himnaríki tónlistaraðdáandans? Ég skal svara þeirri spurningu með glöðu geði ! Þannig er mál með vexti að hann Snorri Þór er mikill tónlistaráhugamaður og á þar af leiðandi gríðarlegt magn af tónlist. Ég endurtek: Gríðarlegt magn. 70 gígabæt. Ég hef aldrei á ævi minni verið jafn hamingjusöm og núna. Mér finnst ég valhoppa í grænu engi með fallegum og litríkum blómum. Hoppedí-hoppedí-hopp... Þangað til ég misstíg mig og dett... Já því gott fólk, einhverndaginn kemur raunveruleikinn og fellur mann með sínum ógeðslegu svörtu, mygluðu löppum.

Enníweis...

Um daginn dreymdi mig stórfurðulegan draum. Ég er farin að efast um geðheilsu mína. Ég man ekki hvernig draumurinn byrjaði en ég var í einhverjum heimavistaskóla, sem var byggður ofaná íþróttahús. Mikil steypa átti sér stað. Allt í einu labba ég inná þessa stórskrítnu heimavist og sé að fullt af stelpum horfa illilega á mig. Þær ætla að ráðast á mig. Mér finnst mikilvægt að segja frá því núna strax í byrjun að á því augnabliki sem ég labbaði inná heimavistina þá held ég á barni í bílstól. Ég átti víst barnið. Það var stelpa og hún var ótrúlega sæt og falleg. Það er enn ein ábendingin að mig hafi verið að dreyma, því allir sem hafa séð mig vita að ef ég myndi einhvern tímann eignast afkvæmi myndu þau líkjast sætu krílunum í Lordi. En alltílæ, snúum okkur aftur að blóðóðu stelpunum. Þær ætluðu semsagt að ráðast á mig. Og hvernig haldiði að snillingurinn hafi varið sig ? Með því að ógna þeim með tannstöngli. Já tannstöngli. Þetta var svo kjánalegt eitthvað. Ég held samt að ég hafi losnað við þessar stelpur. Já, tannstönglar eru ekki einungis til að þrífa burt óhreinindi milli tannana og til að falsa skilríki.
Síðan endaði draumurinn á því að ég sýndi einhverjar fimleikakúnstir í íþróttahúsinu fyrir neðan heimavistina.

Í kvöld hitti ég kópavogsskvísurnar mínar og ætlum við að miðbæjast. Það er yndislegt að búa í miðbænum. Útsýnið úr eldhúsinu er ameisíng. Íbúðin er yndisleg. Nóg af tónlist, bíómyndum, Sigur Rósar tónleikum og öðru þrælskemmtilegu dóti. Ekki má gleyma miðbæjarstemningunni.

Afhverju getur lífið ekki alltaf verið svona ? Afhverju þarf þessi helvítis "Raunveruleiki" að eyðileggja allt með skítugu tánum sínum ?


Maður spyr sig.


- Lög dagsins: She wants revenge - Tear you apart , Sugar Cubes - Birthday, Sigur Rós - Viðrar vel til loftárasa (live).-



P.S. Vil biðjast afsökunar á því að ég sé ekki að láta heyra neitt í mér þessa dagana. Það er svo brjálað að gera hjá mér :/ Fyligellu ;*

Net-sam-skipti?

Wednesday, May 17, 2006
Híhíhíhíhí... það er endalaust fyndið hvernig fólk hagar sér á internetinu.

Ég var að fá send eftirfarandi skilaboð:

HELLO CUTE ANGEL
Hey cutie pie, Ur beauty is breath-taking! U must be that queen I've been searching for. Please be my friend.... I really love to know u better. Would appreciate if we can chat soon on yahoo: ******@yahoo.com or hotmail: ********@hotmail.com
Could this be love at 1st sight? Keep the smiles rolling baby. U are the bomb!

JEIJJJ ! Ég hef fundið ástina í lífi mínu. Leitinni er lokið. Það var ást við fyrstu ehhh... "sýn" ? Til gamans má geta að aðilinn sem sendi þessi skilaboð er 36 ára.

Fólk lýgur að fólki hægri vinstri fram og tilbaka. Gamli feiti sköllótti kaddlinn er allt í einu orðinn hávaxinn, massaður, tanaður og myndarlegur gæji þegar hann signar sig inn á einhverja spjallrás fyrir 18-25 ára.

Ég verð að efast um samskipti fólks á netinu. Er ég ein um það sem finnst það geta orðið rosalega ópersónulegt? Fólk getur sagt hvað sem er bakvið skjáinn. Það er ekkert mál að ljúga. Manneskjan sem þú ert að "tala" við sér ekki framan í þig. Fólk fer á MSN núorðið til að rífast við vini sína og til að komast hjá því að takast á við tilfinningar. Mér finnst fólk verða samskiptalega fatlað.

Enníweis, letts kött ðe krepp, sjal wí?

Ég er ótrúlega hress. Hvað er í gangi? Fyrir nokkrum vikum var ég sitjandi í myrkrinu með kolsvart hár, naglalakkandi á mér neglurnar svartar og hlustandi á Dimmu Borgir.

Er það sumarið?

Ég veit ekki hvað er í gangi. Ég hef ekki verið svona happy í langan tíma.

Á morgun byrja ég í nýrri vinnu og verður spennandi að sjá hvernig þetta fer. Fólk hefur áhyggjur af því að ég muni sækja í matinn sem ég mun bera fram og enda eins og nashyrningur... Halló og góðan daginn elskurnar, ég hef sjálfsaga. Ég held líka að ég muni fá klígju af öllum svona feitum mat og baði mig í skyri og gulrótum eftir vinnu - á hverjum degi. Þrisvar.

P.S. Hvaða kjánabangsi á það til að senda mér sms af síminn.is og biðja mig um að koma á msn, án þess að gefa upp nafn? Ég endurtek: án þess að gefa upp nafn? Það er soldið pirrandi you know! Plís gefðu upp nafnið þitt næst. Takk.
P.P.S. Ég ætlaði að skrifa eitthvað svaka merkilegt í p.p.s. en ég er bara búin að gleyma því :/ Þannig í rauninni gæti ég strokað P.P.S. út og látið eins og ekkert hafi gerst, en ég er svo löt og þú kæri lesandi ert ennþá að lesa óþarfa ruglið í mér. En þar sem þú ert ennþá að lesa þetta (hugsanlega) þá ætla ég að taka það fram að vonandi trúðir þú því ekki að ég hafi verið að naglalakka á mér neglurnar svartar um daginn.
P.P.P.S. Hey ég man núna! Ég fæ íbúð til afnota í næstu viku í miðbæ reykjavíkur. Hann Snorri minn Þór er að fara til Danmerkur og lánar mér íbúðina sína á meðan. Þessi elska á hjarta úr gulli.

Lag dagsins: Placebo - The Bitter End

Mig langir á Hróaskeldu.. Hver vill vera memm?

Live from Selfoss City

Thursday, May 11, 2006
Góðan daginn kæru lesendur,
hvað syngur í landanum? Mikil sorg einkennir líf mitt um þessar mundir. Ég þurfti að láta klippa slatta af hárinu mínu. Hver man ekki eftir að hafa séð mig með mjög funky hár? Já, það var eftir að ég tók slæma ákvörðun í lífi mínu, að gerast hármódel. Lífið hefur ekki verið eins síðan þá. Ég meikaði þetta "skott" og klippingu ekki lengur þannig í fyrradag ákvað ég að láta fagmann klippa skottið af og laga það. Guð minn góður, hvað hún tók mikið. Mig langaði að fara að gráta. Ég skil vel ef þið viljið ekki umgangast mig fyrr en síddin er komin aftur. Í alvöru. Ég skil það. Ég er skilningsrík. Ég myndi ekki einu sinni vilja hanga með sjálfri mér. Kannski við hittumst eftir nokkra mánuði ?

Ég vona það :´(

Ég sakna Maggsins...! 8 mánuðir í að ástin mín komi aftur heim.. Get ekki beðið :´( Komdu heim núna ! Eða ég fer til Nýja Sjálands og sæki þig, sæti skiptineminn minn ;*
Ég sakna líka Lísu :´( en ég veit að hún er í góðum höndum hjá Malenu og Árna :)

Voðalega er þetta þunglyndislegt blogg... ég sem ætlaði að vera svo jolly. Jæja svona er þetta.

Hafiði pælt í því hvað fólk getur verið ótrúlega mikið fífl ?

Jæja ókei..nú er ég hætt þessu rugli!

Ég get sagt frá þrennu skemmtilegu:

1.) Aðeins tvö próf eftir.. Enska og Rekstrarhagfræði.
2.) Á morgun fer ég á lokaball FSU með Hildi, Atla, Fribba, Kötlu og Benna.
3.) Helena, besta vinkona mín frá Þýskalandi sem ég hef þekkt síðan við vorum 5 ára ætlar að koma til Íslands í sumar :D Kannski fer ég
samt frekar út að hitta hana og alla.. ég sakna þjóðverjanna minna :´(

Lag dagsins: Teddy Geiger - For you I will

Djöfullinn er ég orðin væmin!